Fréttatilkynning frá Hafrannsóknastofnun: Mælingar á stærð loðnustofnsins í
janúar 2017
Eins og kunnugt er bentu mælingar á loðnustofninum í september/október 2016
til þess að veiðistofninn á vertíðinni 2016/2017 væri lítill og í samræmi
við samþykkta aflareglu var ákveðið að engar veiðar yrðu stundaðar nema
mælingar í janúar/febrúar 2017 gæfu tilefni til endurskoðunar.
Vetrarmæling á loðnustofninum fór fram á rannsóknaskipunum Bjarna
Sæmundssyni og Árna Friðrikssyni ásamt uppsjávarskipinu Polar Amaroq dagana
11. �?? 20. janúar 2017 með það að markmiði að meta stærð veiðistofnsins.
Rannsóknasvæðið var landgrunnið og landgrunnsbrúnin frá Grænlandssundi,
austur með Norðurlandi og allt að norðanverðum Austfjörðum. Gerðar voru 2
mælingar á veiðistofninum. Sú fyrri fór fram dagana 12. – 15. janúar og
fannst loðna frá sunnanverðum Vestfjörðum norður um og austur að
Kolbeinseyjarhrygg (mynd 1). �?ar fyrir austan varð ekki vart við fullorðna
loðnu. �?ar sem veður var slæmt þegar mælingunni lauk biðu skipin á
Siglufirði þar til veður batnaði. Síðari yfirferðin fór fram dagana 17. –
20. janúar á svæðinu frá Kolbeinseyjarhrygg og vestur um (mynd 2). Veður
var viðunandi en ís hafði færst yfir hluta mælingasvæðisins í seinni
yfirferðinni.
Um 398 þúsund tonn af kynþroska loðnu mældust í fyrri yfirferðinni og
mæliskekkja (CV) var metin 0.2. Í síðari yfirferðinni mældust um 493
þúsund tonn og mæliskekkjan metin 0.23. Meðaltal þessara mælinga, 446
þúsund tonn, er mat á stærð veiðistofns.
Gildandi aflaregla, sem stjórnvöld ákváðu að taka upp vorið 2015, byggir á
því að skilja eftir 150 þúsund tonn til hrygningar með 95% líkum. Tekur
aflareglan tillit til óvissumats í mælingunum, vaxtar og náttúrulegrar
dánartölu loðnu, auk þess sem afrán þorsks, ýsu og ufsa á loðnu er metið. Í
samræmi við ofangreinda aflareglu verður heildaraflamark á vertíðinni
2016/2017 57 þúsund tonn.
Hafrannsóknastofnun, 25. janúar 2017