Rétt eftir klukkan eitt var Björgunarfélag Vestmannaeyja ræst út, heildarútkall til þess að leita að flugvél milli lands og Eyja. Verið var að undirbúa leit á bátum þegar útkallið var afturkallað. Í ljós kom að flugvél, sem var á leið til Vestmannaeyja frá Reykjavík, hafði gleymt að láta vita af breyttri flugleið en vélin er nú á leið til Hornafjarðar.