Um síðustu helgi fór fram hér í Vestmannaeyjum goslokaafmæli þar sem 40 ár eru liðin frá goslokum. Mikill fjöldi gesta var í bænum þessa daga og ýmsar uppákomur fyrir gesti og heimamenn. Óhætt er að segja að hátíðin hafi farið að mestu vel fram og engin alvarleg mál komu á borð lögreglunar. Þó hafði lögreglan í ýmsu að snúast við að aðstoða fólk og greiða úr málum.