Norrköping og Helsingborg mættust í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar þar sem Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Alfreð Finnbogason léku allan leikinn. Gunnar Heiðar skoraði eina mark leiksins eftir rúmt korter og tryggði heimamönnum þannig sigur í fyrsta leik tímabilsins en Alfreð Finnbogason, sem lék í framlínu Helsingborg, komst ekki á blað.