Tvær sveitir hafa tilkynnt komu sína á þjóðhátíð í sumar. Annars vegar er um að ræða eitt heitasta bandið á landinu í dag, sem er sveitin Úlfur Úlfur. Þá hefur rokksveitin goðsagnakennda Ham einnig staðfest komu sína í Herjólfsdal en Hamverja þarf vart að kynna fyrir þeim sem hafa fylgst með tónlist undanfarna áratugi. Þetta er í fyrsta sinn sem Ham verður á sviðinu á þjóðhátíð.