Harður árekstur varð í dag á gatnamótum Illugagötu og Kirkjuvegs. Bíl var ekið yfir á á stöðvunarskyldu, til norðurs og í veg fyrir bíl á Kirkjuvegi. Skullu bílarnir saman og samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru þeir báðir mjög illa farnir, ef ekki ónýtir. Annar ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabíl til aðhlynningar á sjúkrahús en meiðsli hans eru ekki talin alvarleg. Mikill vökvi lak úr bifreiðunum tveimur og var slökkvilið Vestmannaeyja kallað út til hreinsunarstarfa, auk þess sem starfsmenn Vestmannaeyjabæjar hreinsuðu gatnamótin. Annar bíllinn lenti á ljósastaur sem skemmdist.