Formaður Rannsóknarnefndar sjóslysa segir að Landeyjahöfn sé vandamálið, ekki Herjólfur, og vitnar til niðurstöðu athugunar á óhappi sem varð í innsiglingunni á árinu 2010. Nefndin skrifaði Siglingastofnun og lýsti yfir áhyggjum af öryggi skips, áhafnar og farþega. Ingi Tryggvason segir að atvik sem síðar hafi orðið hafi ekki dregið úr áhyggjum nefndarinnar – heldur þvert á móti.