Eins og greint var frá á Eyjafréttum.is í gær hefur Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi kært Sjómannafélagið Jötunn vegna meints siðleysi í kappróðri á Sjómannadaginn í Vestmannaeyjum. Forsvarsmenn Jötuns hafa brugðist við kærunni og eru lögmenn félagsins að yfirfara hana en kærunni verður svarað næstkomandi mánudag. „Vegna mikils lögfræðikostnaðar sjáum við okkur ekki fært að hafa lögmennina í helgarvinnu enda taxtinn fyrnahár um helga,“ segja forsvarsmenn Jötunnar í orðsendingu til ritstjórnar.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst