Lundaball sem skráð verður á spjöld sögunnar sem það besta hingað til, hið árlega Lundaball verður haldið þann 28. september næstkomandi og í ár eru það eðaldrengirnir í Brandinum sem sjá um ballið. Þegar að Brandurinn sá síðast um lundaballið var það mál allra sem á ballið komu að það ball hefði verið það langbesta enda Brandarar þekktir fyrir hágæða húmor.