Starfsgreinasamband Íslands undirritaði nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins þann 3. desember síðastliðinn. Gildistími samningsins er frá 1. nóvember 2022 til 31. janúar 2024. Atkvæðagreiðsla um samninginn fór fram dagana 9. – 19. desember. Niðurstöður atkvæðagreiðslu liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta hjá þeim 17 aðildarfélögum sem eiga aðild að honum. Í heildina var kjörsókn 16,56%, já sögðu 85,71% en nei sögðu 11%. 3,29% tóku ekki afstöðu. Á kjörskrá voru 23.711 manns.
Drífandi stéttarfélag er ásamt 16 öðrum félögum aðili að samningnum. Kjarasamningurinn er framlenging á Lífskjarasamningnum sem gilti frá 2019-2022. Að mati samningsaðila styður samningurinn við kaupmátt launa auk þess að veita heimilum og fyrirtækjum fyrirsjáanleika á miklum óvissutímum. Samningurinn geti þannig byggt undir stöðugleika og skapað forsendur fyrir langtímasamningi. Unnið verður markvisst að nýjum kjarasamningi á samningstímabilinu og grunnur lagður að því að þann 1. febrúar 2024 taki nýr langtímasamningur við af þessum samningi.
Drífandi hélt kynningarfund fyrir sína félagsmenn og að sögn Arnar Hjaltalíns formanns Drífanda var hljóðið gott í hans fólki. „Félagsmenn hafa verið almennt mjög sáttir með nýja samninginn enda sést það á kosningatölunum, rétt um 95% samþykktu samninginn. Samningurinn er stuttur, einfaldur, gildir frá 1. nóvember og gefur góða hækkun.”
Nú hefur verið rætt um það rætt hafi verið við fólk og það hvatt til að hafna samningnum. Arnar segir þá sem standi að baki herferðar eins og þessarar séu hópur fólks sem tengist Eflingu. „Það er nú einu sinni þannig að aðalhlutverk stéttarfélaga er að gera kjarasamninga og verja þá síðan og fólkið sem vinnur eftir þeim. Við félagsmenn stéttarfélaganna getum verið með allskonar skoðanir á ýmsum málefnum, pólitískar eða hvað annað. En við megum aldrei nokkurn tíman nota stéttarfélögin sem verkfæri til að ná okkar pólitísku skoðunum fram,“ sagði Arnar
Farið hefur fé betra
„Það er ágætis sátt á Íslandi um hvernig velferðarþjóðfélag við viljum hafa. Það eru misháværir örhópar sem vilja eitthvað allt annað, jafnvel gera byltingu. Við sem erum í forsvari í hreyfingunni höfnum því alfarið að hreyfingin og stéttarfélög innan hennar séu notuð í þeim tilgangi. Einstaka félög hafa í krafti stærðar og þar með fjármagns verið með hótanir um úrsögn úr ASÍ ef þau fá ekki fram hugarfóstur formanna þeirra. Ég segi bara farið hefur fé betra og jafnvel er nauðsynlegt að þau fari út. Þá getum við haldið áfram að byggja upp hreyfinguna og haldið henni sterkri og sameinaðri í stað þess að vera ávallt í innbyrðis átökum.“
nánar er rætt við Arnar í nýjasta tölublaði Eyjafrétta
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst