Meistaramót Golfklúbbs Vestmannaeyja hefst á morgun, miðvikudag. Keppt er í sjö flokkum í karlaflokki, Meistaraflokki, 1.,2.,3. og 4. flokki, öldungaflokki 55 til 69 ára og í flokki 70 ára og eldri. Einn opinn kvennaflokkur er í mótinu eins og undanfarin ár. Leiknir verða fjórir hringir, nema í öldungaflokki en keppendur þar leika þrjá hringi.