„Þetta er skip sem hentar okkur mjög vel. Erum að taka skref fram á við miðað við það skip sem við vorum með áður,“ sagði Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins sem í morgun tók á móti nýrri Heimaey VE 1, nýju uppsjávarskipi Ísfélagsins sem kemur í stað skips með sama nafni sem selt var til Noregs. Einnig voru Guðbjörg Matthíasdóttir sem ásamt fjölskyldu sinni er einn stærsti eigandi Ísfélagsins, Kristinn Sigurðsson sonur hennar og Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélagsins mætt á bryggjuna þegar skipið lagðist að bryggju klukkan sjö í morgun.

Nýja skipið hét áður Pathway og var gert út frá Peterhead í Skotlandi „Heimaey fyrri er mikið happafley en það var kominn tími til að taka stökkið fram á við. Með nýrri hönnun og getu til að gera betur. Er skref fram á við frá gömlu Heimaey sem var afhent í Síle árið 2012. Ber 2000 tonn á meðan þetta skip er öflugra og burðargetan 2500 tonn.

Fimm árum yngra skip sem segir ekki alla söguna því kynslóð í hönnun skilur þau að, gömlu og nýju Heimaey.“ Og Eyþór er ánægður með nýja skipið. „Karstensens skipasmíða stöðin í Skagen er annáluð fyrir að smíða bestu uppsjávarskipin í heiminum í dag og verkefnastað an þannig að þeir eru með mörg skip í smíðum sem þeir afhenda í röðum. Hér vilja menn láta smíða uppsjávavarskipin og ekkert skrýtið. Þeir eru einfaldlega fremstir í sínu fagi, Danirnir.“

Að innan er skipið hið glæsilegasta og hefur verið vel gengið um skipið sem er að sjá eins og nýtt.
Skipstjórar eru Ólafur Einarsson og Sigurður Rúnar Sigfússon og yfirvélstjórar eru Fannar Veigar og Ágúst Halldórsson.























Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.