Eyjamenn eru stórhuga fyrir komandi vetur í handboltanum og hafa sankað að sér sterkum leikmönnum. Peningar sem hafa farið í kvennaliðið undanfarin ár fara nú í karlaliðið. Reksturinn er ekki mikið dýrari í ár. Karlalið ÍBV er komið aftur upp í efstu deild og miðað við lætin í Eyjamönnum á leikmannamarkaðnum upp á síðkastið ætla Eyjamenn sér ekki að vera farþegar í N1-deildinni í vetur.