Samgöngufundur sá sem halda átti í Vestmannaeyjum um samgöngumál Eyjanna á þriðjudag, er um það bil að hefjast í húsakynnum Siglingastofnunar í Kópavogi. Fresta varð fundinum í Eyjum þar sem ekki var flugfært til Eyja. Elliði Vignisson, bæjarstjóri sagði í stuttu samtali við Eyjafréttir að af tveimur slæmum kostum, væri sá illskárri valinn, að halda fundinn á höfuðborgarsvæðinu.