Eimskip mun reka Herjólf áfram en Vegagerðin hefur tekið síðara tilboði Eimskips í reksturinn. Um er að ræða rekstur frá 1. maí 2012 til 1. júní 2014 en samkvæmt heimildum Eyjafrétta.is er möguleiki á framlengingu samningsins til 1. september 2015, eða þegar núverandi skip fær ekki lengur haffærisskírteini á siglingaleiðinni. Síðara tilboð Eimskips hljóðaði upp á 681 milljón en fyrra tilboðið var tæpum 180 milljón krónum hærra. Áætlaður verktakakostnaður Vegagerðarinnar var hins vegar 832 milljónir króna, eða 18% hærra en tilboð Eimskips.