Kvennalið ÍBV var ekki í teljandi vandræðum með utandeildarlið ÍA þegar liðin mættust í 16 liða úrslitum Visabikarkeppninnar á Hásteinsvelli í dag. Lokatölur urðu 6:0 en Eyjastúlkur voru 5:0 yfir í hálfleik. Þar með er ÍBV komið í 8 liða úrslit bikarkeppninnar og jafna þar með árangurinn frá því í fyrra. Dregið verður 8 liða úrslitum bikarkeppninnar á mánudaginn.