Kvennalið ÍBV í handbolta vann í kvöld góðan sigur á HK í 2. deild Íslandsmótsins en liðin áttust við í Vestmannaeyjum. Gestirnir úr Kópavogi byrjuðu betur í leiknum, komust í 0:3 en Eyjastúlkur jöfnuðu 6:6 og skiptust liðin á að skora það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Eyjastúlkur voru þó yfir í hálfleik 19:18 í sannkölluðum markaleik.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst