Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi, Vestmannaeyjum leggur fram kæru á hendur Sjómannafélaginu Jötni vegna róðrarkeppni milli félaganna laugardaginn 5. júní sl. Sl. 18 ár hefur Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi borið sigur úr býtum í árlegri róðrarkeppni milli Verðandi og Jötuns. Í gær (laugardag) gerðust þau tíðindi að Sjómannafélagið Jötunn lagði Verðandimenn í róðrarkeppninni. Í liði Verðandimanna eru allir keppendur reyndir sjómenn, flestir starfandi stýrimenn og skipstjórar. Við nánari skoðun kom í ljós að Sjómannafélagið Jötunn hefur keypt lið.