Annar dagur þjóðhátíðarinnar er nú að baki en gestir hátíðarinnar hafa svo sannarlega verið heppnir með veður. Í Eyjum er nú sól og blíða, en dagurinn í gær var líklega einn af betri veðurdögum sumarsins í Eyjum og minnti klæðnaður fólksins meira á það sem þekkist við miðbaug en við suðurströnd Íslands.