Áhætta að reka bæjarfélagið á einni vatnslögn í sjó

Vatnsleiðsla til Vestmannaeyja var til umræðu á fundi bæjarráðs í vikunni sem leið. Bæjarráð fór yfir stöðuna á framgangi undirbúnings lagningu nýrrar vatnsleiðslu milli lands og Eyja. Undirbúningshópur hefur verið í samskiptum við HS veitur um málið og aðilar eru sammála um mikilvægi þess að leggja nýja vatnslögn. Skipuð hefur verið verkefnastjórn um verkið hjá […]
Almannavarnanefnd Vestmannaeyja hefur fundað reglulega vegna stöðunnar í rafmagnsmálum
Bæjarráð kom saman síðastliðinn föstudag vegna stöðunnar sem upp er komin vegna afhendingar á rafmagni til Vestmannaeyja. Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðunni eftir að bilun kom upp og rafmagnslaust var í Eyjum í byrjun vikunnar. Bæjarstjóri hefur haldið bæjarráði upplýstu frá því að málið kom upp. Nú er ljóst að bilun varð á Vestmannaeyjastreng 3 […]
Hefja undirbúning að lagningu nýrrar vatnsleiðslu til Vestmannaeyja

Bæjarráð skipaði þann 29. september sl., sérstakan starfshóp um lagningu nýrrar vatnslagnar til Vestmannaeyja. Hópurinn er skipaður Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra, Eyþóri Harðarsyni, fulltrúa bæjarráðs, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs. Þann 6. október sl., átti bæjarráð fund með stjórn og framkvæmdastjórn HS veitna, m.a. um nýja vatnsleiðslu til Vestmannaeyja. Fulltrúar Vestmannaeyjabæjar gerðu […]
Teflt á tæpasta vað með vatn og rafmagn

„Við þurfum aðra vatnsleiðslu, nýjan rafstreng milli lands og Eyja, meira varaafl og það er nauðsynlegt að Landsnet tryggi okkur öruggari flutning á rafmagni uppi á landi,“ segir Ívar Atlason, svæðisstjóri vatnssviðs hjá HS-Veitum í Vestmannaeyjum. Hann leggur áherslu á þá staðreynd að vatnsleiðslan sem lögð var milli lands og Eyja árið 2008 er sú […]
Vatnsleiðslan – Árni Matt stóð með Eyjamönnum 2008

Neitun innviðaráðuneytisins frá 14. júlí um fjárstuðning ríkisins við lagningu nýrrar vatnsleiðslu milli lands og Eyja er blaut tuska í andlit Vestmannaeyinga. Bréf ráðuneytisins var tekið fyrir í bæjarráði á þriðjudaginn þar sem niðurstaðan var hörmuð. „Viðræður milli aðila hafa staðið yfir í meira en ár og meðan á þeim stóð voru bundnar miklar vonir […]
Snjallmælavæðing HS veitna

Nú stendur yfir snjallmælavæðing hjá HS veitum, í því felst að verið er að skipta um alla orkumæla á heimilum í Vestmannaeyjum og er sú vinna langt komin. Ívar Atlason hjá HS veitum segir að búið sé að skipta um alla heitavatns- og kaldavatnsmæla og vinna við rafmangsmæla standi yfir nú. Vonir standa til að […]
Tilkynning vegna afmagnsleysis í Eyjum

Um kl. 08:46 í morgun varð rafmagnslaust á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum. Ástæðan er sú að þrjár línur Landsnets á Suðurlandi eru bilaðar þ.e. Selfosslína 1, Hellulína 1 og Hvolsvallarlína 1. Búið er að staðsetja bilunina á Selfosslínu 1 og gæti hún verið komin í rekstur eftir 1,5 – 2 klukkustundir en enn er verið […]
Skerðing raforku til fjarvarmaveitna

Eins og flestir hafa væntanlega heyrt þá hefur Landsvirkjun orðið að skerða ótrygga raforku og þá m.a. til fjarvarmaveitna vegna bágrar stöðu í miðlunarlónum, aðallega Þórisvatni. Í Vestmannaeyjum er vatnið hitað upp annarsvegar í varmadælustöðinni og hinsvegar í kyndistöðinni. HS Veitur hafa keypt forgangsorku fyrir varmadælustöðina en til að halda niðri kostnaði þá hefur verið […]
Birkihlíð 4 er jólahúsið 2021

Árlega taka Lionsmenn í Vestmannaeyjum upp á því í samstarfi við HS veitur að velja jólahús Vestmannaeyja. Í ár var það húsið við Birkihlíð 4 sem var valið. Þar eru húsráðendur þau Anna Rós Hallgrímsdóttir og Páll Þ. Harðar. Þau tóku á móti viðurkenningu frá þeim Sigurjóni Ingólfssyni frá HS veitum og Arnari Andersen formanni […]
Nauðsynlegt að leggja nýja vatnslögn milli lands og Vestmannaeyja

Ólafur Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs kom á fund bæjarráðs í hádeginu í dag til þess að greina frá þeirri vinnu sem átt hefur sér stað um greiningu á nauðsyn þess að koma fyrir nýrri neðansjávarvatnsleiðslu milli meginlandsins og Vestmannaeyja. Til þess að bæta öryggi heimila og fyrirtækja er nauðsynlegt að leggja nýja vatnslögn milli […]