KR-ingar voru betri aðilinn í leiknum en það var ekki fyrr en á 73. mínútu sem þeim tókst að skora. �?ar var að verki Morten Beck Andersen en hann kom inná sem varamaður tíu mínútum áður.
Stuttu fyrir leikslok bætti �?skar �?rn Hauksson svo við marki og tryggði KR góðan 2-0 sigur en Eyjamenn voru að tapa fjórða leiknum sínum af síðustu fimm.
KR fór upp í 7. sæti með sigrinum og er ennþá veik von um sæti í Evrópukeppni á næsta ári. Eyjamenn halda áfram að daðra við fallsæti en þeir eru aðeins fjórum stigum á undan Fylki sem er í fallsæti.