Í gærkvöldi sendu knattspyrnumaðurinn Tryggvi Guðmundsson, eða TG9 eins og hann er oft kallaður, og knattspyrnufélagið Fylkir frá sér fréttatilkynningu þar sem greint var frá því að Tryggvi spili ekki meira með Árbæjarfélaginu í sumar. Tryggvi segist þó ekki vera hættur í fótbolta og mun því væntanlega finna sér nýtt lið þegar félagsskiptaglugginn opnar á mánudaginn.