Rúmlega 15 þúsund tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2016 sem í ár fer fram í 33. sinn. �?egar skráningarhátíð hlaupsins lauk í Laugardalshöll í gær höfðu þannig 15.135 skráð sig til þátttöku.
mbl.is greindi frá
Samtals eru 1.568 skráðir til þátttöku í heilu maraþoni, 2.920 í hálft maraþon, 147 í boðhlaup, 6.654 í 10 kílómetra, 2.129 í 3 kílómetra og 717 í krakkamaraþon.
�?átttökumet hefur þegar verið slegið í maraþoni og hálfu maraþoni samkvæmt fréttatilkynningu. Rúmlega 4.000 erlendir gestir frá 79 löndum eru skráðir til þátttöku og hafa aldrei verið fleiri.
�?á gengur áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka á hlaupastyrkur.is mjög vel. Heildarupphæð safnaðra áheita nálgast 90 milljónir sem er nýtt met í áheitasöfnun hlaupsins. Gamla metið var sett árið 2014 þegar 85,6 milljónir söfnuðust. Áheitasöfnunin verður opin til miðnættis á mánudag.