Kvennalið ÍBV lagði Aftureldingu að velli í dag en leik liðanna var frestað í gær. ÍBV hafði yfirhöndina í hálfleik 10:14 en lokatölur urðu 24:27. Markahæst hjá ÍBV var Drífa �?orvaldsdóttir, sem skoraði átta mörk. ÍBV komst upp í 4.-5. sæti með sigrinum en liðið er jafnt Fram með 6 stig eftir fimm leiki. Afturelding er hins vegar í neðsta sæti með ekkert stig. Næsti leikur ÍBV er laugardaginn 19. október þegar Eyjakonur taka á móti HK.