�?egar Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar var á leið til Reykjavíkur eftir útkall vegna flutningaskipsins Goðafoss barst beiðni frá Vestmannaeyjum um þyrlu í sjúkraflug þar sem ekki var mögulegt fyrir sjúkraflugvél að lenda vegna óveðurs.
Var þyrlan við �?orlákshöfn þegar útkallið barst og er hún nú við það að lenda í Vestmannaeyjum.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum liggja allar samgöngur niðri við Vestmannaeyjar því hvorki hefur verið hægt að fljúga þangað og eins hefur Herjólfur ekki getað siglt í morgun.