Kvennalið ÍBV tapaði í dag fyrir Gróttu á útivelli en lokatölur urðu 26:24. ÍBV var yfir í hálfleik 11:13 en Eyjakonur náðu ekki að fylgja því eftir í síðari hálfleik. Grótta jók því muninn á milli liðanna úr einu stigi í þrjú en liðin sitja samt á fram í þriðja og fjórða sæti. Grótta er nú með 11 stig en ÍBV er í fjórða sæti með 8 stig. Næsti leikur ÍBV verður á heimavelli eftir viku þegar ÍBV tekur á móti Fylki, sem er í næst neðsta sæti deildarinnar.
Mörk ÍBV: Vera Lopes 6, Drífa �?orvaldsdóttir 6, Guðbjörg Guðmannsdóttir 6, Ester �?skarsdóttir 5, Telma Amado 1.