900 Grill er nýr veitingastaður í hjarta bæjarins sem var opnaður á föstudag. Hólmgeir Austfjörð og Jóhanna Inga Jónsdóttir eiga og reka staðinn sem er á Vestmannabraut 23 þar sem skóverslun Axel Ó. var lengst af til húsa. Húsnæðið er bjart og stílhreint og matseðilinn fjölbreyttur og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.