Sú �??umhverfistöffaramennska�?? (sjá skilgreiningu hér neðst) sem einkenndi seinasta kjörtímabil er að verða Eyjamönnum og eins og svo mörgum öðrum afar kostnaðarfrek. Á seinasta fundi bæjarstjórnar lýsti meirihluti Sjálfstæðismanna yfir þungum áhyggjum af þeirri miklu kostnaðaraukningu sem orðið hefur í meðferð sorpmála í sveitarfélaginu. Í máli okkar sjálfstæðismanna kom fram að lokun sorpbrennslustöðvar í sveitarfélaginu sem fyrst og fremst má rekja til ákvörðunar fyrrverandi umhverfisráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, hafi nú leitt til 77% hækkunar sorpeyðingargjalda.
Heimilin í Eyjum borga fyrir umhverfistöffaramennskuna í ráðherrum VG
�?ll berum við ábyrgð á umhverfi okkar og sú ábyrgð er rík. Við eigum að umgangast umhverfið af virðingu og tryggja að við skilum því í betra ástandi til komandi kynslóða en við tókum við því. Hluti af þessari ábyrgð er að fara ekki í einhvern vitleysisgang, heldur hafa heildarhagsmuni í huga. Tryggja að samfélög og umhverfi þeirra séu í sátt, enda bæði hluti af sama vistkerfinu. �?að er hættulegt samfélaginu ef umhverfissjónarmið eru ekki virt. Á því leikur ekki vafi. Á sama hátt er líka hættulegt umhverfinu þegar umræðan verður öfgakennd og rasað er um ráð fram ýmist af vanþekkingu eða í pólitískum leik. �?egar umræða um sorporkustöðina hér í Eyjum náði sem hæst á vordögum 2011 varaði ég við því að umhverfisyfirvöld færu þá leið slá sig til riddara á kostnað heimila í Eyjum. �?g benti til að mynda á að ef of bratt yrði farið myndi kostnaður fara úr böndum og með einum eða öðrum hætti myndu heimilin hér bera þann bagga. (
sjá td. hér)
Ruglið reið ekki við einteyming
Umræða um díoxínmengun náði nýjum hæðum á vordögum og mátti nema móðursýkina og vitleysisganginn á Richterskala þegar verst lét. Svo langt gekk að nauðsynlegt reyndist að halda borgarafund hér í Eyjum þar sem landlæknir sagði til að mynda að erfitt væri að sýna fram á eiturefnaáhrif díoxín á menn og fátt myndi benda til þess að slíku væri fyrir að fara í Vestmannaeyjum (
sjá td. hér). Allt var reynt til að verja hagsmuni bæjarbúa. �?tal fundir, bréfaskrif, lögfræðingameldingar og fl. Við bentum á að búið væri að ná tökum á díoxínmengun, hægt að draga um 60% úr brennslu og þar fram eftir götunum. Allt kom þó fyrir ekki. (
sjá td. hér)
Ekkert var hlustað
Bent var á að heildar umhverfisáhrifin væru alvarlegri af því að flytja sorpið til förgunar annað og brenna díselolíu til orkuöflunar hér í Eyjum í staðinn. �?að skipti ekki máli fyrir þá sem fóru með valdið. Bent var á hversu mikill árangur hefði náðst í að draga úr útblæsti og að stöðin væri orðin langtum betri en hún var þegar hún var ný. �?að skipti umhverfistöffarana ekki máli. Bent var á að ef haldið yrði áfram með ofstækið gegn brennslunni í Eyjum þyrfti að flytja allt sorp í burtu með farþegaferju sem illa myndi þola aukið álag. �?au rök máttu sín lítils. Bent var á þann mikla kostnað sem af þessum kröfum myndu hljótast. �?að skipti ekki máli fyrir þá sem fóru með valdið. Fleira var dregið fram til að kalla eftir skilningi þáverandi umhverfisyfirvalda. �?au skelltu hinsvegar skollaeyrum við öllum ábendingum.
Eitt af stóru verkefnum næsta kjörtímabils
Nú er skaðin skeður. Heimilin í Eyjum geta því þakkað fyrrum umhverfisráðherra kostnaðaraukningu af sorpeyðingargjöldum upp á 77%. �?llu sorpi í Eyjum eru nú komið í ferþegaferjuna og því síðan trukkað um hundruði kílómetra til förgunar annarstaðar. Í staðinn brennum við aukinni díselolíu. Eitt af stóru verkefnum næsta kjörtímabils verður að finna hagkvæmari leiðir í sorpmálum íbúa. Leiða má líkum að því að sérstaklega verði horft til þess að hefja á ný sorpbrennslu til orkuöflunar.
(Umhverfistöffaramennska; Að ráðast gegn almennri skynsemi í nafni umhverfisöfga og eftir láta öðrum að greiða kostnaðinn eða færa fórnirnar. Dæmi: ofstækið gegn sorpbrennslum, herferð gegn umferð á hálendinu, stríð gegn nýtingu vatnsafls og lengi má áfram telja. Sjá stefnu VG til nánari glöggvunar á umhverfistöffaramennsku.)