Á fundi bæjarráðs í gær þriðjudaginn 21. ágúst var meðal annars umræða um samgöngumál og þá sér í lagi nýja ferju og rekstur hennar.
Fyrir bæjarráði lágu eftirfarandi minnispunktar frá Grími Gíslasyni stjórnarformanni Vestmannaeyjarferjunar Herjólfs ohf. um stöðu undirbúningsvinnu vegna komu nýs Herjólfs og yfirtöku félagsins á rekstri ferjunnar:
- Almennt má fullyrða að undirbúningur félagsins fyrir komu
skipsins til landsins gangi vel og sé á áætlun.
- Sökum þess að verkefnastjóri er ekki lengur við störf hjá
félaginu hafa stjórnarmenn, o.fl., tekið að sér einstök
verkefni svo undirbúningur geti gengið eins vel og kostur er.
- Búið er að ráða skipstjóra og einn yfirvélstjóra. Þá er vinnsla
á umsóknum um starf framkvæmdastjóra félagsins í gangi hjá
Capacent. Níu einstaklingar sóttu endanlega um stöðuna en áður en
nöfnin voru birt drógu tveir umsækendur sig til baka.
- Auglýst hefur verið eftir umsækjendum um öll störf á skipinu,
en sá fyrirvari er þó gerður að ekki liggur enn fyrir
niðurstaða samgöngustofu um fjölda starfsmanna.
- Vinnsla við gerð allra skráningarskírteina, og annarra gagna sem
þurfa að vera til staðar við komu skipsins eins og
öryggishandbók, ofl., er í fullum gangi. Fyrirtækið Navis tekið
að sér að sjá um þá vinnu, auk þess sem skipasmíðastöðin ofl.
munu gefa út nauðsynleg skírteini.
- Unnið er að undirbúningi þess að fá fyrirtæki til að gera
verðtilboð í þarfagreiningu/greiningarvinnu og eftir atvikum
gerð nýs bókunarkerfis (m.a. app og heimasíðu) ? og/eða vinna
uppfærslur á núverandi bókunarkerfi reynist það hagkvæmara og
gerlegt. Hugmyndin sem unnið er eftir af hálfu félagsins er sú
að komið verði upp „one stop shop„ síðu fyrir Vestmannaeyjar,
þar sem fleiri aðilar gætu komið að, t.a.m. ferðaþjónustuaðilar,
o.fl.
- Félagið og einstaka stjórnarmenn eru í góðum samskiptum við
vegagerð, smíðanefnd og ríki vegna smíði hins nýja skipsins og
fær allar upplýsingar um stöðu mála um leið og tilefni gefst
til að upplýsa um hana.
- Skipstjórar hafa farið í þjálfun í sérstökum hermi í Danmörku.
- Einn skipstjóri fer til Póllands á morgun, þ.e. þann 21. ágúst.
- Ráðinn vélstjóri er í Póllandi og vinnur að undirbúningi.
- Fljótlega þarf að hefja viðræður við ríkið og ganga frá því
að gamli Herjólfur verði til taks allan tímann meðan
samningur ríkisins við bæinn er í gildi og hvernig félagið geti
notað skipið á tímabilinu, þ.e. réttindi og skyldur.
- Samningur núverandi rekstraraðila rennur út þegar nýja skipið
kemur til landsins. Tryggja þarf að yfirfærslan gangi vel fyrir
sig.