Fimmtán ára Eyjastúlka sigraði í samkeppni um besta frumsamda lagið um þróunarhjálp, sem frjáls félagasamtök og Þróunarsamvinnustofnun efndu til nú í vikunni. Viktoría Rún Þorsteinsdóttir frumflutti lagið á Rás tvö og kemur auk þess fram á tónleikum með nokkrum þjóðþekktum tónlistarmönnum á Rosenberg.