Glæsilegur þrettándi í Eyjum

Endað var á malarvellinum við Löngulág þar sem þúsundir fylgdust með tröllum, álfum, púkum, jólasveinum og öðru hyski dansa í kringum álfabrennu. Að lokinni mikilli flugeldasýningu hélt hópurinn til síns heima í Helgafelli og er ekki væntanlegur fyrr en um næstu jól. (meira…)

Hlustað á Urriðafoss

Í ráði era ð virkja Urriðafoss og lýstu fundarmenn efasemdum sínum með ágæti þeirrar framkvæmdar. Auk Bjarna töluðu á fundinum bændurnir Einar Haraldsson á Urriðafossi og Jón Vilmundarson í Skeiðháholti. �?á flutti Sigríður Jónsdóttir skáld og bóndi í Arnarholti ljóð fyrir viðstadda. Fundinum lauk svo með því að fundarmenn gengu fram fyrir fossinn og hlustuðu […]

Stöðugur straumur fólks í dag

�?ll tæki salarins eru ný og er búið að fjölga hlaupabrettum og hlaupahjólum margfalt. Kjartan Már Hallkelsson, rekstrarstjóri og yfirþjálfari Nautilus var mjög ánægður með viðtökurnar, sagði þær hafa farið fram úr björtustu vonum og því hafi verið ákveðið að framlengja tilboð á árskortum til morguns. (meira…)

Sainz sækir á

Finninn Ari Vatanen drekkti Volkswagen bíl sínum í dag og féll við það niður í 113. sæti þannig að sigur fyrir hann er útilokaður.Í flokki mótorhjóla hefur Portúgalinn Helder Rodrigues á Yamaha 47 sekúndna forystu á Ruben Faria sem einnig ekur Yamaha. (meira…)

Harður árekstur á Heiðarvegi

Slys urðu þó minniháttar á fólki. Launhált er á götum Vestmannaeyjabæjar í dag, víða hálkublettir og því rétt að fara varlega á síðasta degi jóla. (meira…)

Sveitarstjórinn hættur

Jóna Sigurbjartsdóttir oddviti segir að þessi staða hafi komið óvænt upp en lítið við því að gera. Hún segir að sveitarstjórn muni hittast í lok vikunnar og ræða málið en ætlunin er að auglýsa eftir nýjum sveitarstjóra. Sigrún Björg Rafnsdóttir, eiginkona Valgeirs, starfaði sem hjúkrunarfræðingur á heilsugæslunni á Klaustri. (meira…)

Lúðrasveitin spilar í �?rettándamessu

Sr. Kristján Björnsson annast guðsþjónustuna á þrettándanumf yrir stjórn Stafkirkjunnar og Stefán Sigurjónsson stjórnar félögum sínum í Lúðrasveitinni. (meira…)

Aukið framlag til reiðvegagerðar

Uppbygging reiðvega er þáttur í samkomulagi við hestamannafélögin þar í sveit. Núverandi slóðar verða lagfærðir á ýmsum stöðum og nýir vegir lagðir, meðal annars um Hjallatorfuna allt til Hveragerðis. (meira…)

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.