Endurreisn Framsóknarflokksins!

Framsóknarmenn hafa nú um langt árabil látið telja sér trú um að hugsjónir þeirra í stjórnmálum séu úreltar og gamaldags. Á það jafnt við sátta- og samvinnuhugsjónir flokksins, byggðastefnuna og þjóðhyggjuna. �?egar hugsjónir okkar eru taldar úreltar er stutt í að trúa því að Framsóknarflokkurinn sjálfur eigi sér ekki markmið önnur en völdin og metorð […]

Lokaundirbúningur fyrir Íslandsmót barna

Nægar veitingar verða á staðnum fyrir alla, að auki fá allir krakkar sem taka þátt í mótinu gjöf frá Sparisjóðnum.Meðal keppenda er Helgi �?lafsson stórmeistari, en hann hefur í dag verið í Hamarsskóla og Barnaskólanum að tefla fjöltefli við nemendur skólanna. Hann mun einnig vera með æfingar fyrir efnilegustu skákmenn Eyjanna hjá Taflfélaginu næstu daga.Skákkennslan […]

Vinningsnúmer í húsnúmerahappdrætti ÍBV

VINNINGASKRÁ: v.nr. nr. vinningur 1. 608 50.000 kr. Innborgun á utanlandsferð frá �?rval-�?tsýn 2. 216 Flugferð með Icelandair til Evrópu fyrir 2 3. 7 15.000 kr. Gjafakort í Geisla4. 1744 10.000 kr. Standlampi frá Reynistað 5. 1768 10.000 kr. Vöruúttekt í Krónunni6. 1672 10.000 kr. Vöruúttekt í Krónunni7. 931 Árgjald í ÍBV-klúbbinn8. 1182 Ársmiði á […]

Skipulagning í höndum kjördæmissambands Framsóknarfélaga

Í frétt um þessa kosningu kemur fram : �?Skipulagning utankjörfundaratkvæðagreiðslunnar á Selfossi var í höndum framsóknarfélaganna í Árborg.�? Vegna þessa vill stjórn Framsóknarfélags Árborgar koma því á framfæri að skipulagning þessi var í höndum kjörstjórnar á vegum Kjördæmissambands Framsóknarfélaga í Suðurkjördæmi en ekki félagsins. Ber því félagið enga ábyrgð á framkvæmd þessari.F.h Framsóknarfélags Árborgar, Helgi […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.