Gaf grænt ljós á Mjólkurbúshverfisblokkir

Skipulagsstofnun fellst á að ekki þurfi að auglýsa deiliskipulag Mjólkurbúshverfisblokkanna á Selfossi að nýju, þar sem ákveðið hefur verið að koma til móts við athugasemdir íbúa með því að lækka hæð húsanna. Stofnunin gerir hins vegar athugasemdir við óvönduð vinnubrögð starfsmanna Sveitarfélagsins Árborgar við nýjan deiliskipulagsuppdrátt. (meira…)

Ánægja í FSu

Á dögunum kom út skýrsla þar sem niðurstöður úr könnun á starfsumhverfi ríkistarfsmanna 2006 eru kynntar. Í samanburði á Fjölbrautaskóla Suðurlands og öðrum stofnunum ríkisins og mælist FSu hærri en allir viðmiðunarhópar þegar kemur að starfsánægju starfsmanna. (meira…)

Bæjarbúar þekki afrek vor, velvilja og framlag til betri heims

Vestmannaeyjar Kæru Eyjamenn og aðrir aðdáendur. Vitanlega vísum vér Fyrirmyndarbílstjórar öllu tali bóndavinafélags kötlu (eða hvað þeir nú heita) um hroka, yfirgang, ónæði og amstur til föðurhúsanna. Meðlimir FBF treysta því að bæjarbúar þekki afrek vor, velvilja og framlag til betri heims. Það hryggir oss að ótíndir pörupiltar skuli nú finna hjá sér hvatir til […]

�?teyjaferð Eyverja á laugardaginn

Vestmannaeyjar Hin árlega og sívinsæla úteyjaferð Eyverja verður farin á laugardaginn og er stefnan að venju sett á Elliðaey. Þar verður grillað, sungið og skemmt sér í góðum félagsskap. Mæting er kl. 18 stundvíslega fyrir framan Kaffi Kró. Verð er 2000 krónur og aldurstakmark miðast við árið 1989. (meira…)

Talsverður straumur gesta á goslokahátíð

Mikill fjöldi gesta var hér um síðustu helgi vegna Shellmótsins í knattspyrnu. Svo virðist sem næsta helgi ætli ekki að verða neinn eftirbátur í því enda goslokahelgin og mikið um að vera í bænum. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.