Gleðilega Þjóðhátíð

Þjóðhátíð Vestmannaeyja var sett í dag í Herjólfsdal. Seinka þurfti setningunni eilítið vegna hvassviðris en rokið er að lægja og verður veðrið orðið fínt um miðbik kvölds. Útlit er fyrir stærstu Þjóðhátíð í mörg ár, enda er alltaf fleira og fleira fólk að átt sig á því að um verslunarmannahelgina þá er Þjóðhátíðin langstærsta og […]

Setningu �?jóðhátíðar frestað til 16.00

Þjóðhátíðarnefnd hefur tekið ákvörðun um að fresta setningu Þjóðhátíðarinnar, sem átti að fara fram klukkan 14.30. Setningunni verður frestað um eina og hálfa klukkustund eða til klukkan 16.00 og mun dagskrá að öðru leyti halda áætlun. (meira…)

Setningu þjóðhátíðar frestað til 16:00

Þjóðhátíðarnefnd hefur sent frá sér tilkynningu um festun á setningu þjóðhátíðarinnar. Örlitlar breytingar verða á dagskrá dagsins í kjölfarið, fimleikar og frjálsar íþróttir sem voru á dagskránni detta út af dagskrá dagsins. Enn er örlítill strekkingur í eyjum og samkvæmt veður spá á að lægja með kvöldinu. Dagskráinn í dag verður því eftirfarandi: 16.00 Setning þjóðhátíðar  Þjóðhátíðin […]

Önnur árásarkvennanna yfirheyrð í Eyjum

Búið er að yfirheyra aðra konuna sem réðst á 28 ára gamla konu fyrir utan skemmtistaðinn Sólon síðastliðna helgi. Konan var kölluð til skýrslutöku í Eyjum í gær en sleppt að því loknu því ekki þótti ástæða til að handtaka hana vegna málsins. Konan sem ráðist var á hefur legið á spítala í fimm daga […]

Fékk stangarklemmu í andlitið

Vinnumaður við Hellisheiðarvirkjun var fluttur á slysadeild í Reykjavík með höfuðáverka eftir vinnuslys um klukkan tíu í morgun. (meira…)

Vel gengur að ferja fólk til Eyja

Flug- og siglingar frá Bakka og Þorlákshöfn til Vestmannaeyja hafa gengið vel í dag. Herjólfur lagði af stað um hádegi í dag með fullt skip farþega, eða um 500 manns. Hann fer þrjár ferðir í dag. (meira…)

Vísað úr Herjólfi fyrir drykkjulæti

Tveir ölvaðir karlmenn þurftu að gista í fangageymslu Selfosslögreglu í nótt. Skipstjóri Herjólfs vísaði þeim frá borði, áður en hann leysti landfestar í Þorlákshöfn, vegna dólgsláta. Mennirnir fengu hins vegar að fara með skipinu til Eyja í morgun, eftir að runnið var af þeim. (meira…)

Teknir með fíkniefni í Vestmannaeyjum

Tvö minniháttar fíkniefnamál komu upp í Vestmannaeyjum í gær. Farþegi með Herjólfi var handtekinn með lítisháttar að hassi sem hann hafði falið innklæða. Þá fundu lögreglumenn tvær e-töflur á aðila í tjaldi í Herjólfsdal. Í dagbók lögreglunnar segir að fangageymslur í Vestmannayjum hafi verið fullar í nótt, þar sem fólk hafi fengið að sofa úr […]

Tvö minniháttar fíkniefnamál í Eyjum í gær

Erilsamt var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt. Fangaeymslur voru fullar þar sem aðilar fengu að sofa úr sér ölvunarástand. Tveir 15 ölvaðir drengir stálu sendibifreið og lentu utan vegar. Lögreglumenn náðu þeim á hlaupum frá vettvangi. Þeir neituð að hafa ekið bifreiðinni og voru því vistaðir í fangageymslu. Við yfirheyrslu viðurkenndi annar þeirra að […]

Starfsfólk bankanastofnana í eyjum í þjóðhátíðarskapi

Það renna á viðskiptavini Glitnis og Sparisjóðsins tvær grímur þegar þeir koma inn þessar bankastofnanir í eyjum í dag. Starfsmenn hafa klætt sig í ýmiskonar búninga til að koma sér í rétta gírinn fyrir helgina. Þetta framtak starfsfólksins er til fyrirmyndar og myndar góða stemningu á vinnustaðnum og hjá viðskiptavinum bankans er leið  eiga í útibúið. (meira…)

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.