Gleðilega Þjóðhátíð

Þjóðhátíð Vestmannaeyja var sett í dag í Herjólfsdal. Seinka þurfti setningunni eilítið vegna hvassviðris en rokið er að lægja og verður veðrið orðið fínt um miðbik kvölds. Útlit er fyrir stærstu Þjóðhátíð í mörg ár, enda er alltaf fleira og fleira fólk að átt sig á því að um verslunarmannahelgina þá er Þjóðhátíðin langstærsta og glæsilegasta hátíðin. Ekki skemmir svo fyrir skemmtidagskráin sem er þéttskipuð frábærum listamönnum.Húkkaraballið var að venju í gærkvöldi, fimmtudag og tókst frábærlega vel. Týsheimilið var troðið af fólki og hljómsveitin Á móti sól spilaði fyrir ballgesti. Verður að segjast alveg eins og er að hljómsveitin hefur sjaldan eða aldrei verið jafn góð og nú enda Magni kominn með flottan Rockstar fíling inní bandið. Þjóðhátíðargestir ættu því að fara sáttir frá danspallinum öll kvöldin, enda allt frábærar hljómsveitir sem leika á hátíðinni í ár.

Eyjamenn nær og fjær auk allra þeirra gesta sem leggja, eða hafa lagt, leið sína á stærstu hátíð í heimi:

GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ !

Nýjustu fréttir

Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
ÍBV og KA skildu jöfn á Hásteinsvelli
Laxey boðar til samráðs- og upplýsingafundar
Djamm Original heldur í hefðirnar  – Frá Bridgerton í aldamótastuð
Tvöfaldur leikdagur hjá ÍBV
Guðný Geirsdóttir – Íþróttamaður mánaðarins
Vestmannaeyjar í lykilhlutverki á 100 ára afmæli Landhelgisæslunnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.