Selfoss marði ÍH

Selfyssingar sitja nú í 2. sæti 2. deildar karla í knattspyrnu eftir sigur á ÍH á Selfossvelli í kvöld. Sigurinn var torsóttur þar sem heimamenn féllu niður á plan gestanna og spiluðu ekki hrífandi knattspyrnu. Lokatölur voru 3-2 og kom sigurmarkið úr vítaspyrnu. (meira…)

Uppgjör Þjóðhátíðar

Þá er minni tuttugustu og sjöundu þjóðhátíð lokið. Svei mér þá en þegar ég vaknaði um hádegið á sunnudegi þá hélt ég því fram að ég væri orðinn of gamall í þetta. En mánudagurinn afsannaði þá kenningu og var ég gjörsamlega stálsleginn og ánægður eftir frábæra helgi. Fékk mér meira að segja 1 bjór við […]

Fyrsti leikur eftir Þjóðhátíð: Stjarnan-ÍBV á morgun

Created by PhotoWatermark Professional

Fyrsti leikur eftir Þjóðhátíð verður á morgun er lið ÍBV heimsækir Stjörnumenn í Garðabæinn. Lið ÍBV situr sem fyrr í 5. sæti deildarinnar, er nú með 23 stig. Stjarnan er einu sæti neðar með 16 stig og hafa forráðamenn liðsins líklegast gert ráð fyrir betra gengi í sumar en raun ber vitni. Í síðustu þremur […]

Tryggvi orðinn markahæstur

Tryggvi Guðmundsson varð í gær markahæsti leikmaður íslensks liðs í Evrópukeppnum frá upphafi. Markið sem Tryggvi skoraði í gær var hans sjötta í Evrópukeppni en fyrir leikinn höfðu hann og fjórir aðrir skorað fimm mörk í Evrópu. (meira…)

Spjallþráður fyrir Vestmannaeyjar

Opnað hefur verið spjallborð á www.eyjar.net þar sem eyjamönnum nær og fjær gefst kostur á því að láta gamminn geysa og ræða þau mál sem liggja þeim á hjarta eða bara spjalla til gamans. Markmið með þessu spjallborði er að búa til samfélag á netinu þar sem hægt er að ræða málin á málefnalegum og uppbyggilegum […]

Tryggvi orðinn markahæstur

Tryggvi Guðmundsson varð í gær markahæsti leikmaður íslensks liðs í Evrópukeppnum frá upphafi. Markið sem Tryggvi skoraði í gær var hans sjötta í Evrópukeppni en fyrir leikinn höfðu hann og fjórir aðrir skorað fimm mörk í Evrópu. Áður áttu metið með Tryggva þeir Hermann Gunnarsson (Valur 5), Mihajlo Bibercic (KR 4, ÍA 1), Ríkharður Daðason […]

Afar lítið um þoku í Vestmannaeyjum í sumar

Að þessu sinni þurftu Vestmannaeyingar ekki að hafa áhyggjur af þoku í kring um Þjóðhátíð. Ég tók eftir því að í dag kl. 15 var komin þoka á Stórhöfða, gamall kunningi sem nánast hefur ekki sést á þessum slóðum þetta sumarið. Við frekari eftirgrennslan var síðast þoka í Eyjum um miðjan daginn (kl 12 eða […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.