Uppgjör Þjóðhátíðar
Þá er minni tuttugustu og sjöundu þjóðhátíð lokið. Svei mér þá en þegar ég vaknaði um hádegið á sunnudegi þá hélt ég því fram að ég væri orðinn of gamall í þetta. En mánudagurinn afsannaði þá kenningu og var ég gjörsamlega stálsleginn og ánægður eftir frábæra helgi. Fékk mér meira að segja 1 bjór við eldamennskuna í gær. Eins og með áfengisneysluna þá fannst mér ég einnig vera orðinn ansi slakur á gítarinn og átti erfitt með að muna flest lögin, en það endaði eins og með Bakkus sjálfan. Aðfararnótt mánudagsins birtist einn peyji af fastalandinu inn í tjaldinu og hóf að spila á gítar þó svo ég væri í miðju viðlagi og fóru flestir í tjaldinu að taka undir með honum. Ekki lét ég þetta þó á mig fá, enda vanur austan 13 vindstigum beint í smettið og hóf annað lag um leið og hinn ókunnugi kláraði sitt. Endaði þetta síðan með mikilli keppni að hætti bíómyndarinnar ?Crossroads?. Tekin voru ýmis lög og geymdi ég spaða ásinn uppí erminni…?Psycho killer? með Talking Heads. Það lag er ómögulegt að toppa nema þá að taka Göllavísur og það vissi ég að kauði kunni ekki. En stórt ríspekt fyrir þessum náunga hann var mjög hress og flínkur spilari.
Ég las síðan í Blaðinu grein eftir einhvern Atla sem var á Þjóðhátíð á þeirra vegum. Ekki ætla ég nú að tíunda það sem hann sagði en hann hefur annað hvort farið öfugu meginn frammúr alla dagana eða þá að þetta hafi verið fyrsta skiptið sem hann fór út fyrir 101 Rvk. Honum fannst Sprengjuhöllin skara frammúr um hátíðina og gaf frekar lítið fyrir allt annað. Ég verð nú bara að segja eins og er að mér finnst lögin þeirra ágæt þegar þau eru spiluð í útvarpinu en live eru þeir ekki góðir, ættu að leita sér að söngvara, alveg arfaslakur söngvari þessi gæi á kassagítarnum. Set hann í flokk með leiðinlega gaurnum í Sykurmolunum og Cher. Talandi um söngvara þá má bæta því við að Toby Rockstar var 100x betri en Magni Rockstar. Það fannst mér allavegana ásamt öllum 16 ára stelpunum. Jæja best að fara að telja niður í þá næstu.

Kveðjur frá Kaprí Norðursins, Heimaey.

http://www.123.is/kjempetorsken/

Nýjustu fréttir

Innviðaráðherra svarar bæjarráði
Spurt og svarað: Jón Þór frá Miðflokknum
Hafnað um stækkun ramps
Fyrirliði ÍBV spennt fyrir komandi tímabili í Bestu deildinni
Þungt tap ÍBV gegn KR
Stelpurnar klárar í slaginn
Jóna Heiða með sýningu í Sagnheimum
Eldsneytisvandi í Eyjum ratar á Alþingi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.