Lúðrasveit Vestmannaeyja heldur árlega hausttónleika sína laugardaginn 7. nóvember klukkan 16 í Hvítasunnukirkjunni við Vestmannabraut. Hátt í 40 hljóðfæraleikarar stíga á svið og flytja fjölbreytta efnisskrá.
Meðal fastra liða á dagskránni eru tónlist Oddgeirs og mars eftir Sousa. Þá verður flutt syrpa þjóðhátíðarlaga sem útsett var fyrir landsmót lúðrasveita í Eyjum í september, auk annarra valinna verka úr ýmsum áttum.
„Við bjóðum öllum að njóta tónlistar og góðrar samveru með okkur í Hvítasunnukirkjunni og vonumst eftir góðri mætingu,“ segir í tilkynningu frá sveitinni.
Allir eru velkomnir og er aðgangseyrir 2.500 krónur.