Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM

Íslenska karlalandsliðið í handbolta hóf leik sinn í undankeppni Evrópumótsins 2028 með sannfærandi 48–26 sigri á Úkraínu í Laugardalshöll í kvöld. Íslenska liðið hafði mikla yfirburði frá upphafi og leiddu með 14 marka mun í hálfleik, 23–9. Munurinn hélt áfram að aukast í síðari hálfleik og var kominn í 20 mörk þegar stundarfjórðungur var eftir. […]
Blásið til hausttónleika

Lúðrasveit Vestmannaeyja heldur árlega hausttónleika sína laugardaginn 7. nóvember klukkan 16 í Hvítasunnukirkjunni við Vestmannabraut. Hátt í 40 hljóðfæraleikarar stíga á svið og flytja fjölbreytta efnisskrá. Meðal fastra liða á dagskránni eru tónlist Oddgeirs og mars eftir Sousa. Þá verður flutt syrpa þjóðhátíðarlaga sem útsett var fyrir landsmót lúðrasveita í Eyjum í september, auk annarra […]
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin

Sex þingmenn leggja til að undirbúin verði kaup eða smíði á aukaferju sem sigli með Herjólfi milli Vestmannaeyja og lands yfir sumartímann. Ferjan verði jafnframt varaferja fyrir bæði Herjólf og Baldur. Samkvæmt tillögunni á innviðaráðherra að leggja áætlun fyrir Alþingi eigi síðar en á vorþingi 2027. Karl Gauti Hjaltason er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar. Með honum […]
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni

Á síðasta fundi bæjarstjórnar var fjallað um styttingu Hörgeyrargarðs, framkvæmd sem kann við fyrstu sýn að virðast lítil í umfangi en hefur mikla þýðingu fyrir framtíð Vestmannaeyjahafnar og öryggi þeirra sem hana sækja. Hún snýst um hvernig við sem samfélag hugsum um öryggi, framfarir og virðingu fyrir sögunni. Uppbygging hafnarmannvirkja í Vestmannaeyjum var ekki eitt […]
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld

Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur leik í undankeppni Evrópumótsins 2028 í kvöld, þegar liðið mætir Úkraínu í Laugardalshöll kl. 19:30. Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Íslands, hefur valið þá 16 leikmenn sem taka þátt í leiknum. Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson, leikmaður þýska liðsins Gummersbach, er sem fyrr í leikmannahópnum. Uppselt er á leikinn í Laugardalshöll og […]
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending

Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2027 verður tekin til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í dag, miðvikudaginn 4. nóvember. Fundurinn hefst klukkan 14:00 í Ráðhúsinu og verður sýndur í beinni útsendingu hér á vef Eyjafrétta. Þetta er 1631. fundur bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Auk fjárhagsáætlunar næsta árs verður þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir árin 2028–2030 tekin til fyrri umræðu, […]
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum

Verslanir í Eyjum verða með sérstaka kvöldopnun á morgun, fimmtudag, þar sem boðið verður upp á veitingar, afslætti, happdrætti, tískusýningar og ýmsar aðrar uppákomur. Opið verður frá klukkan 17:00 til 21:00 og gefst bæjarbúum tækifæri til að gera sér glaðan dag og nýta sér tilboð í verslunum bæjarins. Eftirfarandi verslanir taka þátt í kvöldopnuninni: Póley […]
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi

Árið 2026 hefur verið óvenjulega viðburðaríkt í rekstri Herjólfs. Erfiðar aðstæður í Landeyjahöfn, bilun í rafmótor, vandræði með bókunarkerfið og aukinn rekstrarkostnaður hafa sett mark sitt á starfsemina. Þrátt fyrir þetta var farþegafjöldinn frá júní til september nánast sá sami og í fyrra. Niðurstöður nýrrar þjónustukönnunar sýna jafnframt mikla ánægju með þjónustu starfsfólks félagsins. Ólafur […]