Á síðasta fundi bæjarstjórnar var fjallað um styttingu Hörgeyrargarðs, framkvæmd sem kann við fyrstu sýn að virðast lítil í umfangi en hefur mikla þýðingu fyrir framtíð Vestmannaeyjahafnar og öryggi þeirra sem hana sækja. Hún snýst um hvernig við sem samfélag hugsum um öryggi, framfarir og virðingu fyrir sögunni.
Uppbygging hafnarmannvirkja í Vestmannaeyjum var ekki eitt verkefni heldur áratugalangt stórvirki. Fyrstu stóru skjólgarðarnir við Hringsker risu upp úr 1914, en rúmum áratug síðar var Hörgeyrargarður byggður sem hluti af áframhaldandi þróun hafnarinnar. Hvor framkvæmd um sig var svar við þörfum síns tíma. Nú stöndum við sjálf frammi fyrir sömu skyldu, að laga höfnina að þörfum samtímans.
Hörgeyrargarður hefur verið hluti af hafnarmynd Vestmannaeyja í nær heila öld. Garðurinn var reistur á árunum 1928-1929, á tímum þegar höfnin stóð frammi fyrir allt öðrum áskorunum en í dag. Hann var byggður af framsýni og þjónaði mikilvægu hlutverki í þeirri uppbyggingu sem gerði Vestmannaeyjahöfn að einni af mikilvægustu fiskihöfnum landsins.
Eldgosið árið 1973 breytti Vestmannaeyjum til frambúðar. Það breytti ekki aðeins byggðinni og landslaginu heldur einnig innsiglingunni. Síðan þá hafa aðstæður þróast áfram og skipin sem sækja höfnina eru stærri og kröfur til öryggis meiri.
Í dag blasir við að Hörgeyrargarður þrengir að siglingaleiðinni inn í höfnina. Þegar stærri skip eru að sigla um höfnina eða liggja við bryggju skapast aðstæður sem ekki eru eins öruggar og við viljum hafa þær. Markmið styttingar garðsins er einfalt, þ.e. að bæta siglingaöryggi og skapa betra svigrúm fyrir skipaumferð í höfninni.
Sumir kunna að spyrja hvort rétt sé að breyta mannvirki sem hefur verið hluti af ásýnd hafnarinnar svo lengi. Að mínu mati er svarið já. Ekki vegna þess að saga garðsins skipti ekki máli. Þvert á móti. Ástæða þess að við eigum að fara í þessa framkvæmd er einmitt sú sama og varð til þess að hann var byggður á sínum tíma. Þá voru menn að bregðast við aðstæðum samtímans og bæta öryggi sjófarenda. Nú erum við að gera nákvæmlega það sama.
Það væri ekki í anda þeirra kynslóða sem byggðu hafnarmannvirkin að halda óbreyttu fyrirkomulagi ef við vitum að hægt er að gera það betra og öruggara.
Vestmannaeyingar hafa alltaf tekist á við breytingar. Við höfum lagað okkur að náttúruöflunum, breytt innviðum okkar þegar þörf hefur verið á og horft til framtíðar með raunhæfum hætti. Stytting Hörgeyrargarðs er hluti af þeirri sögu.
Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs.