Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Mynd/HSÍ

Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur leik í undankeppni Evrópumótsins 2028 í kvöld, þegar liðið mætir Úkraínu í Laugardalshöll kl. 19:30.

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Íslands, hefur valið þá 16 leikmenn sem taka þátt í leiknum. Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson, leikmaður þýska liðsins Gummersbach, er sem fyrr í leikmannahópnum.

Uppselt er á leikinn í Laugardalshöll og verður hann sýndur beint á RÚV 2.

Íslenska liðið heldur svo til Tallinn í Eistlandi þar sem liðið mætir heimamönnum sunnudaginn 8. nóvember kl. 16:00 að íslenskum tíma. Sá leikur verður einnig sýndur beint á RÚV 2.

Nýjustu fréttir

Herjólfur stefnir á Landeyjahöfn síðdegis
Norlandair opnar fyrir bókanir í flug til Eyja
Þessi börn vinna lítil kraftaverk á hverjum degi
Góð veiði hjá Vestmannaey og Bergey
Vill gera sérfræðiþekkingu í íþróttum aðgengilegri fyrir alla
Guðmundur Tómas nýr meistari Vöruhúsdeildarinnar
Útboð heilsuræktar – hvað sýna fjárhagsgögnin?
Vikan í Eyjum: Skipalyftan 45 ára, fullt hús hjá Grýlu og sigur á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.