
Sex þingmenn leggja til að undirbúin verði kaup eða smíði á aukaferju sem sigli með Herjólfi milli Vestmannaeyja og lands yfir sumartímann. Ferjan verði jafnframt varaferja fyrir bæði Herjólf og Baldur. Samkvæmt tillögunni á innviðaráðherra að leggja áætlun fyrir Alþingi eigi síðar en á vorþingi 2027.
Karl Gauti Hjaltason er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar. Með honum standa að henni Ingibjörg Davíðsdóttir, Þorgrímur Sigmundsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Ingveldur Anna Sigurðardóttir.
Í greinargerð segja flutningsmenn að Herjólfur anni ekki eftirspurn, einkum yfir sumartímann. Dæmi séu um langa biðlista og að íbúar Vestmannaeyja komist ekki upp á land um helgar þar sem allar ferðir séu fullbókaðar.
Flutningsmenn benda jafnframt á að staðan versni þegar Herjólfur þurfi að fara í viðgerð eða geti ekki sinnt siglingum vegna bilana. Í greinargerðinni er rifjuð upp bilun í skrúfu Herjólfs árið 2023, þegar kalla þurfti til varaskip og samið var við Icelandair um daglegar flugferðir til og frá Eyjum í eina viku.
Þá er vísað til alvarlegrar vélarbilunar í Herjólfi árið 2026, þegar Baldur var fenginn til að sinna siglingum við Vestmannaeyjar. Það hafi haft í för með sér röskun á reglubundnum siglingum Baldurs um Breiðafjörð.
Með sérstakri aukaferju vilja flutningsmenn draga úr því að bilun eða viðhald á annarri ferjuleiðinni hafi bein áhrif á þjónustu á hinni.
Tillagan gerir einnig ráð fyrir að horft verði til þess að nýta aukaferjuna með Herjólfi þegar siglt er til Þorlákshafnar að vetrarlagi, eftir því sem aðstæður leyfa og þörf krefur.
Við val á ferju verði gerðar kröfur um örugga og hagkvæma farþega- og bifreiðaflutninga. Hún þurfi jafnframt að geta sinnt hlutverki varaferju á báðum ferjuleiðum.
Hvorki er tilgreindur kostnaður né áætlaður upphafstími siglinga í tillögunni. Verði hún samþykkt verður ráðherra falið að undirbúa verkefnið og leggja áætlun um kaup eða smíði fyrir Alþingi eigi síðar en á vorþingi 2027.