Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Nóg verður um að vera í miðbænum annað kvöld

Verslanir í Eyjum verða með sérstaka kvöldopnun á morgun, fimmtudag, þar sem boðið verður upp á veitingar, afslætti, happdrætti, tískusýningar og ýmsar aðrar uppákomur. Opið verður frá klukkan 17:00 til 21:00 og gefst bæjarbúum tækifæri til að gera sér glaðan dag og nýta sér tilboð í verslunum bæjarins.

Eftirfarandi verslanir taka þátt í kvöldopnuninni:

Póley
Skvísubúðin
Flamingo
Salka (ásamt Mandala)
Sjampó

Ýmislegt verður um að vera þetta kvöld. Skvísubúðin mun meðal annars standa fyrir tískusýningu sem hefst klukkan 19:30. Póley fagnar jafnframt fimm ára afmæli sínu og í Sölku verða vörur frá Mandala til sölu.

Brothers, Vöruhúsið og Prýði verða einnig með sérstaka afslætti í tilefni opnunarinnar.

Það verður því líf og fjör í verslunum bæjarins og tilvalið að nýta kvöldið til að líta við, gera góð kaup og kynna sér vöruúrvalið í heimabyggð. Kvöldopnanir sem þessar hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hafa verið vel sóttar. Því má búast við góðri stemningu í bænum þetta kvöld.

Ef verslun þín tekur þátt í kvöldopnuninni en er ekki á listanum má senda okkur upplýsingar á eyjafrettir@eyjafrettir.is.

Nýjustu fréttir

Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.