Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2027 verður tekin til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í dag, miðvikudaginn 4. nóvember. Fundurinn hefst klukkan 14:00 í Ráðhúsinu og verður sýndur í beinni útsendingu hér á vef Eyjafrétta.
Þetta er 1631. fundur bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Auk fjárhagsáætlunar næsta árs verður þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir árin 2028–2030 tekin til fyrri umræðu, samkvæmt auglýstri dagskrá á vef bæjarins.
Skipulagsmál og Hörgaeyrargarður
Meðal annarra mála á dagskrá er umsókn um framkvæmdaleyfi vegna styttingar Hörgaeyrargarðs og flutnings á efni, sem liggur fyrir til umræðu.
Þá liggur tillaga að breytingu á deiliskipulagi við Strandveg 44 fyrir til staðfestingar. Einnig verður tekin fyrir staðfesting á samþykki fyrir kynningu á vinnslustigi deiliskipulags fyrir norðurhluta iðnaðarsvæðisins í Eldfellshrauni.
Bæjarstjóri fer yfir helstu mál
Bæjarstjóri fer yfir helstu mál og fjallað verður um dagskrá bæjarstjórnarfunda 2026–2027 og kosningu í ráð, nefndir og stjórnir. Þá liggja fundargerðir fræðsluráðs, fjölskyldu- og tómstundaráðs, umhverfis- og skipulagsráðs og framkvæmda- og hafnarráðs fyrir fundinum.
Fylgjast má með fundinum í beinni útsendingu hér fyrir neðan frá klukkan 14:00.
Dagskrá:
Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027 – 202606031– Fyrri umræða –
Þriggja ára fjárhagsáætlun 2028-2030 – 202610139– Fyrri umræða –
Bæjarstjóri: Yfirferð helstu mála – 202606190
Dagskrá bæjarstjórnarfunda 2026-2027 – 202605184
Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar – 202605181
Fræðsluráð Vestmannaeyja – 410Liður 1 liggur fyrir til upplýsinga
Fjölskyldu og tómstundarráð Vestmannaeyja – 335Liðir 1-6 liggja fyrir til upplýsinga.
Fræðsluráð Vestmannaeyja – 411Liðir 1-4 liggja fyrir til upplýsinga.
Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja – 446Liður 1, Strandvegur 44 – Umsókn um breytingu á deiliskipulagi, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða samþykki á tillögu um breytt deiliskipulag.Liður 2, Umsókn um framkvæmdaleyfi – Stytting Hörgaeyrargarðs og flutningur á efni, liggur fyrir til umræðu.Liðir 3-10 liggja fyrir til upplýsinga.
Framkvæmda – og hafnarráð Vestmannaeyja – 345Liðir 1-7 liggja fyrir til upplýsinga.
Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja – 447Liður 1, Deiliskipulag Iðnaðarsvæðis í Eldfellshrauni – norðurhluti, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða samþykki fyrir kynningu á vinnslustigi að deiliskipulagi.Liðir 2-5 liggja fyrir til upplýsinga.