
Einar Björn Árnason er nýr gestur hjá Svövu Kristínu þar sem hann segir frá því hvernig hann hóf sinn feril í eldhúsinu. Þrátt fyrir misheppnaða tilraun til að halda pizzuveislu um borð í Valdimari Sveinssyni hefur Einar Björn ekki unnið við annað en mat síðan þá.
Nóvember er genginn í garð og styttist nú óðum í jólahátíðarnar. Það er því í nógu að snúast hjá Einsa Kalda þessa dagana við undirbúning á jólahlaðborðunum sem haldin eru bæði uppi í Höll og á veitingastaðnum Einsa Kalda.
„Jólahlaðborðin uppi í Höll eru gríðarlega vinsæl og mér finnst þau alltaf ógeðslega skemmtileg. Svo bjóðum við upp á jólahlaðborðin hérna á Einsa Kalda í nóvember og desember og það er öðruvísi stemning, meira kósýkvöld með fjölskyldu og vinum,“ segir Einar Björn, en undirbúningurinn er nú þegar hafinn.
„Við byrjum að undirbúa allt í október og nóvember. Það er verið að grafa allt, græja dressingar og krydd. Núna er líka skemmtilegt að við fáum laxinn frá Laxey, en við erum að gera allt frá grunni og það er það sem gerir jólahlaðborðið mitt einstakt og ég er mjög stoltur af þessu,“ segir Einar Björn sem er mjög spenntur fyrir enn einu stóra jólahlaðborðinu í Höllinni.
Einar Björn ætlaði sér aldrei að verða kokkur. Hann fór hins vegar að vinna hjá Arnóri bakara þar sem honum leið vel og endaði hann á því að fara á samning hjá Arnóri. Einar segir frá því hvernig tveir ólíkustu menn bæjarins unnu þar saman á hverjum degi og skilur hann stundum ekki hvernig Arnór nennti þessum sítalandi glaumgosa, enda Arnór einstaklega rólegur maður.
„En úr varð alveg einstakt samband sem mun endast ævilangt,“ segir Einar Björn er hann lýsir vinasambandi sínu og Arnórs í dag.
Einar Björn er á persónulegu nótunum er hann segir frá þeirri lífsreynslu þegar hann greindist með lungnakrabbamein árið 2021. Hann er þakklátur fyrir lífið sem hann á í dag og segir þessa lífsreynslu hafa dregið sig niður á jörðina og sýnt honum hvað sé í raun og veru mikilvægast í þessu lífi.
Viðtalið má sjá hér að neðan en það er aðeins aðgengilegt áskrifendum í fullri lengd.
Þú hefur horft á ókeypis kynningu. Gerstu áskrifandi til að horfa á myndbandið í fullri lengd.
Gerast áskrifandi Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn