Ekki krafist gæsluvarðhalds yfir manni sem var handtekinn vegna nauðgunarkæru

Maður sem var handtekinn í gærkvöldi af lögreglunni á Selfossi vegna nauðgunarkæru konu á fertugsaldri í Vestmannaeyjum í gærmorgun var í kvöld sleppt úr haldi lögreglunnar á Selfossi. Rannsókn málsins heldur áfram og hefur hinn kærði verið boðaður til frekari yfirheyrslu á morgun. Unnið er að skýrslutöku af vitnum og beðið niðurstöðu rannsókna, samkvæmt upplýsingum […]

Lundaballið nálgast

Þrátt fyrir að lundaveiði hafi ekki verið með besta móti sumar, veiðimenn hafi haft háfinn sinn í bóli, meira eða minna allan lundaveiðitímann, verður ekki slegið slöku við á lundaballinu. Það verður haldið um næstu helgi í Höllinni. Að þessu sinni eru það Elliðaeyingar sem sjá um ballið. (meira…)

�?etta endalausa dekur við Vestfirðinga

Þetta endalausa dekur við Vestfirðinga er orðið þjóðinni til skammar. Ég hef svo sem bent á það áður, en grein Árna Johnsen í Morgunblaðinu í morgun vakti mig til umhugsunar um kvótaaðstoðina sem ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku. Ég er ekki hissa á að Grindvíkingar séu ósáttir. Það er ekki minnst á þá í tillögum […]

Nauðgun kærð í Vestmannaeyjum

Kona á fertugsaldri kærði að morgni laugardags nauðgun til lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Við rannsókn málsins bárust böndin að erlendum ríkisborgara og var hann handtekinn að kvöldi sama dags af lögreglunni á Selfossi, að beiðni lögreglunnar í Vestmannaeyjum, en maðurinn hafði farið frá Vestmannaeyjum með Herjólfi síðdegis á laugardag. (meira…)

Kærði nauðgun til lögreglunnar

Kona á fertugsaldri kærði nauðgun til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í gærmorgun. Fljótlega beindist grunur að erlendum ríkisborgara. Lögreglan á Selfossi handtók hann að kvöldi sama dags. Maðurinn hafði farið frá Vestmannaeyjum með Herjólfi síðdegis á laugardag. Maðurinn, sem er á fertugsaldri, er nú í haldi lögreglunnar á Selfossi. Síðar í dag verður tekin ákvörðun um […]

Nóg að gerast

Um helgina voru æfinga / vináttuleikir við UMFH sem eru frá Flúðum. Komu hingað 17 leikmenn og 2 þjálfarar. Voru þetta kurteisir krakkar og nokkrir efnilegir í þeirra herbúðum en þar má helst nefna 2 leikmenn 10.flokks en það eru stelpur sem spiluðu með strákunum. Stóðu þær sig mjög vel og eiga framtíðina fyrir sér. […]

Kristján Möller játar mistök sín

Kristján Möller, samgönguráðherra játar í Blaðinu í dag að það hafi verið mistök að ætla að gera Einar Hermannsson, skipaverkfræðing að blóraböggli í Grímseyjarferjumálinu. Hann hefur þegar beðið Einar afsökunar á málatilbúnaðinum á fundi í ráðuneytinu. Það heyrir til undantekninga að stjórnmálamenn íslenskir, hvað þá ráðherrar, játi þegar þeim verða á mistök. Þau tilfelli þar […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.