Ekið á gangandi vegfaranda

Karlmaður varð fyrir bíl í Hveragerði á sunnudag á gatnamótum Heiðmarkar og Finnmarkar en slapp með minni háttar meiðsli, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. (meira…)
Bíll brann á Laugarvatnsvegi
Jeppi eyðilagðist þegar eldur kom upp í vélarhúsi á ferð um Laugarvatnsveg á sunnudag. Þegar slökkviliðið á Laugarvatni kom á vettvang var bíllinn mikið brunninn og telst ónýtur, samkvæmt Selfosslögreglu. (meira…)
Stálu dekkjum undan bíl

Bíræfnir þjófar stálu hjólbörðum og felgum undan tveimur bifreiðum við AB-skálann í Gagnheiði á Selfossi nýverið. Annars vegar var um að ræða Mercedes Bens sendibifreið og Suzuki Vitara. (meira…)
Norðlendingar sigursælir

Nemendur í Verkmenntaskólanum á Akureyri sigruðu söngkeppni starfsbrauta framhaldsskóla sem haldin var í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands á fimmtudag. (meira…)
Kjúklingur með grænmeti, núðlum og cashewhnetum
Ég eldaði þessa uppskrift í síðustu viku en þessar góðu uppskrift fékk ég á www.cafesigrun.com en þar má finna mikið af góðum og hollum uppskriftum.Netið er fullt af skemmtilegum og góðum uppskriftum til að elda og www.cafesigrun.com er gott dæmi um þannig síðu.Það er upplagt að gera þessa uppskrift vel stóra svo maður geti haft […]
Með eindæmum róleg vika

Það var með eindæmum rólegt hjá lögreglunni í síðustu viku og ekkert alvarlegt kom upp. Að vanda var lögreglan með eftirlit við skemmtistaði bæjarins um helgina en skemmtanahaldið fór að mestu leiti vel fram. Fjögur umferðaróhöppp voru tilkynnt lögreglu í vikunni og var í öllum tilvikum um minniháttar óhöpp að ræða og engin slys á […]
�?Setið í rökkrinu�? í kvöld

Stærsti upplestrarviðburður á Norðurlöndum hófst í morgunsárið kl. 09 við upphaf Norrænu bókasafnsvikunnar. Þema ársins er að þessu sinni Konan í Norðri.Af því tilefni var samstarf milli bókasafnsins og Grunnskóla Vestmannaeyja um lestur á þeim völdum köflum sem lesnir voru á öllum Norðurlöndunum annars vegar fyrir leikskólabörnin og hins vegar fyrir grunnskólabörnin. (meira…)
Mál Dala-Rafns gegn Olíufélögunum aftur tekið fyrir hjá héraðsdómi

Fyrirtaka verður í dag í máli útgerðarfélagsins Dala-Rafns í Vestmannaeyjum á hendur stóru olíufélögunum þremur vegna tjóns sem útgerðarfélagið telur sig hafa orðið fyrir vegna samráðs félaganna á tíunda áratug síðustu aldar. Þetta er í annað sinn sem málið kemur fyrir dóminn. Héraðsdómur vísaði máli Dala-Rafns á hendur Keri og Olíuverslun Íslands frá í september […]
Frétt af dómsmáli var skáldskapur

Ég var að lesa fréttir á netinu um dóm sem féll vegna ákæru vegna vanrækslu á að nota bílbelti. Það er alltaf gott að sjá fréttir af dómsmálum og það verður sífellt vinsælla umfjöllunarefni fjölmiðla. Hins vegar verður að fara rétt með staðreyndir, en í umfjöllun af þessu máli er hreinlega bara skáldað inn einhverju […]
Ferðalag

Ég þurfti að fara upp á Bifröst um helgina. Það var vinnuhelgi en ég var að klára stærðfræði og byrja í Íslensku. Fór með seinni ferð Herjólfs á föstudag og þrátt fyrir gott veður var töluverð undiralda. Byrjaði á að fá mér kaffi og settist með góðu fólki og umræðan var eins og svo oft […]