Gjafavöruverslun með meiru

Mæðgurnar Erla Gísladóttir og Ásta Björg Kristinsdóttir hafa opnað verslunina Motivo á Selfossi. Þar eru seldar gjafavörur fyrst og fremst en einnig er myndarlegt úrval húsgagna, ljósa og veggfóðurs. (meira…)
Vosbúð opnuð með pompi og prakt

Vosbúð, félagsheimili unglinga í Vestmannaeyjum var opnað með pompi og prakt í dag við Strandveg. Langþráður draumur ungmenna í Vestmannaeyjum rætist þar með en í nokkurn tíma hefur aldurshópurinn 16 til 25 ára kvartað yfir aðstöðuleysi á kvöldin og um helgar. Nú hefur ræst úr og er aðstaðan hin glæsilegasta. (meira…)
Vatnalíf Gunnars Sigurgeirssonar

Vatnalíf, heimildamynd Gunnars Sigurgeirssonar um Veiðivötn, er komin í verslanir á DVD-disk. Þetta er í fyrsta sinn sem gefið er út efni um sögu, veiði og náttúru Veiðivatna. Myndin er í fullri lengd og var fjögur ár í vinnslu. (meira…)
Fjórir fá að taka þátt í lokuðu útboði vegna reksturs Bakkafjöruferju

Ríkiskaup hafa tilkynnt hvaða aðilar fá að taka þátt í lokuðu útboði vegna reksturs Bakkafjöruferju. Eins og greint hefur frá áður sóttust Vinnslustöðin og Vestmannaeyjabær um að fá að taka þátt í útboðinu sameiginlega. VV-samvinnan fær að taka þátt í útboðinu en auk þeirra fá Eimskip, Samskip og Nýsir hf. (meira…)
Brennivínsþjófur í 30 daga fangelsi

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi á þriðjudag karlmann í 30 daga fangelsi fyrir að stela vodkapela úr verslun ÁTVR í Hveragerði. Maðurinn var handtekinn degi fyrr en ákveðið var að draga hann fyrir dómstóla sem fyrst til þess að spara ákæruvaldinu vinnu. (meira…)
Vinnuslys í Grímsnesi
Iðnaðarmaður var um hádegisbilið í dag fluttur á slysadeild í Reykjavík eftir vinnuslys í landi Ásgarðs í Grímsnesi. Lögregla telur að maðurinn hafi hrapað um 2 – 3 metra úr stiga þegar hann var að vinna við húsasmíðar. Hann hlaut höfuðáverka en ekki liggur fyrir hversu alvarlegir þeir eru. (meira…)
Vestmannaeyjabær og Vinnslustöðin taka þátt í forvali vegna ferjusiglinga

Í dag var tilkynnt hverjir fá að taka þátt í forvali vegna ferjusiglinga milli Bakkafjöru og Vestmannaeyja. Eins og fjallað hefur verið um áður á eyjar.net þá ákváðu Vestmannaeyjabær og Vinnslustöðin að fara í samstarf og sóttu saman um þátttöku í forvalinu. Vestmannaeyjabær og Vinnslustöðin voru valin ásamt Eimskip, Samskip og Nýsi og verða þeim […]
Vestmannaeyjabær og Vinnslustöðin taka þátt í forvali vegna ferjusiglinga

Í dag var tilkynnt hverjir fá að taka þátt í forvali vegna ferjusiglinga milli Bakkafjöru og Vestmannaeyja. Eins og fjallað hefur verið um áður á eyjar.net þá ákváðu Vestmannaeyjabær og Vinnslustöðin að fara í samstarf og sóttu saman um þátttöku í forvalinu. Vestmannaeyjabær og Vinnslustöðin voru valin ásamt Eimskip, Samskip og Nýsi og verða þeim […]
ÍBV með tvo landsliðsmenn í knattspyrnu

Augustine N’sumba, eða „Gústi“ eins og hann er kallaður af liðsfélögum sínum í Eyjum fékk, tímabundin félagaskipti úr ÍBV eftir lok síðasta tímabils. Hann vildi halda sér í leikformi og fá aðgang að góðri æfingaaðstöðu. Það virðist hafa borgað sig því hann var valinn í landslið Úganda í síðustu viku. (meira…)
Aðalfundur Félags Austfirðinga í Vestmannaeyjum annað kvöld
Aðalfundur Félags Austfirðinga í Vestmannaeyjum verður haldinn á morgun, miðvikudag 28. nóvember klukkan 20.00 í Alþýðuhúsinu en ekki á fimmtudag eins og kom fram í auglýsingu í Fréttum í síðustu viku. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna. (meira…)