Stórglæsilegar konur í Eyjum!

Ég hafði orð á þessu við nokkrar þeirra og konurnar voru sammála um að verslunin Flamingo í Eyjum byði upp á svo vönduð og flott föt að það hvetti konurnar til að vera flottar í tauinu. Það var ekki síður skemmtilegt að ræða við konurnar í smærri hópum um lífið og tilveruna þegar leið á kvöldið. […]
Selfoss mun taka vörur til Eyja næsta fimmtudag

Þar sem Herjólfur þarf að fara í slipp næsta þriðjudag, mun m.s. Selfoss flytja vörur til Eyja næsta fimmtudag. Varan þarf að koma inn á afgreiðslu Eimskips fyrir klukkan 16:00 n.k. miðvikudag 5. desember. Selfoss verður síðan í Vestmannaeyjum n.k. fimmtudagsmorgun 6. desember. Í næstu viku er ráðgert að Herjólfur fari í slipp í tvo […]
Þrettán marka sigur á Grikklandi

Íslenska kvennalandsliðið vann í dag þrettán marka sigur á Grikklandi, 40-27, í undankeppni EM 2008 sem fer fram í Litháen. Staðan í hálfleik var 18-9, Íslandi í vil og var því sigurinn öruggur. Markahæst var Rakel Dögg Bragadóttir með sjö mörk. Berglind Íris Hansdóttir átti stórleik í marki Íslands og varði 24 skot, þar af […]
Ekki slær á vindinn.

Það er enn þá sama fárviðrið hérna hjá okkur og miklar hviður sem koma niður fjöllin. Við liggjum nokkur hundruð metra frá fjörunni og samt nær að rífa upp sjó, en hann er samt mest hvítfryssandi. Það er varla óhætt að fara út og ef eitthvað fer að losna þá verður það bara að fá […]
Köttur vingast við varðstjóra

Kaldur og hrakinn köttur komst í skjól á lögreglustöð Vestmannaeyja í fárviðri í gær, þegar kona nokkur kom honum þangað. Á stöðinni fékk kötturinn góðar viðtökur. „Hann situr bara hérna á vaktborðinu og hefur það gott,” sagði Pétur Steingrímsson varðstjóri þegar Fréttablaðið sló á þráðinn í gærmorgun.„Hann verður hérna hjá okkur í dag enda er […]
Sértækar álögur á sjávarútveginn skaða landsbyggðina

Í KJÖLFARIÐ á 30% niðurskurði á þorskkvóta hafa umræður um stjórn fiskveiða á ný orðið fyrirferðarmiklar í þjóðmálaumræðunni. Reyndar hefur umræða um gengi fjármálageirans á seinustu misserum orðið til þess að slá því ryki í augu fjölmargra að sjávarútvegur hafi orðið lítið vægi í hagkerfi Íslendinga. Staðreyndin er engu að síður sú að sjávarútvegur er […]
Stærsti segldúkur landsins fór upp í fárviðri

„Okkur leist nú ekkert á þetta þar sem veðurspáin var skelfileg,” segir Jón Viðar starfsmaður Frank og Jóa sem hafði yfirumsjón með uppsetningu á stærsta segldúki landsins í nótt. Það er nýja samskiptafyrirtækið Nova sem ber ábyrgð á segldúknum sem þekur framhlið nýrra höfuðstöðva fyrirtækisins að Lágmúla 9 í Reykjavík. „Okkur var skammtaður tími þar […]