Gáfu Landakirkju og skólum bæjarins nýju Biblíuna

Hjónin Magnús Kristinsson og Lóa Skarphéðinsdóttir afhentu í dag nýju Biblíuna en þau gefa öllum skólum bæjarins og sömuleiðis Landakirkju. Meðal annars gáfu þau Landakirkju nýja Biblíu á altarið sem verður vígð við guðsþjónustu á sunnudaginn. Afhending Bíblíunnar fór fram í Landakirkju í dag og tóku fulltrúar skólanna og kirkjunnar við gjöfinni úr hendi hjónanna. […]

Ian Jeffs ekki áfram hjá ÍBV

Miðjumaðurinn knái Ian Jeffs mun ekki leika aftur með ÍBV næsta sumar. Jeffs á eitt ár eftir af samningi sínum við sænska félagið Örebro en þrátt fyrir það lítur út fyrir að hann spili hér á landi næsta sumar og þá í Landsbankadeildinni. Jeffs gekk til liðs við ÍBV um mitt sumar og lék síðari […]

All hrikalegir vegir

Samgöngumál eru Vestmannaeyingum sem öðrum afar hugleikin. Sumir búa jú við góðar samgöngur, aðrir ekki. Eyjamenn eru í þeim hópi. En það eru líka margir aðrir. Td. fólk sem býr í Bólivíu og notar vegakerfi eitthvað í likingu við það sem þessar myndir sýna. (meira…)

Sigurvin Ólafsson hættur hjá FH

Miðjumaðurinn Sigurvin Ólafsson er hættur hjá bikarmeisturum FH og er ekki búinn að ákveða hvort hann muni leika knattspyrnu á næstu leiktíð. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag. ,,Ég ætla bara að taka mér góða pásu,” sagði Sigurvin í samtali við Fótbolta.net í dag og aðspurður hvort hann spili knattspyrnu næsta sumar […]

Magnús Kristinsson kaupir af sjálfum sér fyrir 4 milljarða

Fjárfestingarfélagið Gnúpur hefur selt rúmlega 4,6 milljón hluti í Kaupþingi til Smáeyjar ehf. en andvirði viðskiptanna nemur tæpum 4 milljörðum kr. Smáey ehf er í eigu Magnúsar Kristinssonar en hann á einnig annan stærsta hlutinn í Gnúpi eða 43,7%. Félög í eigu Kristins Björnssonar og fjölskyldu eiga einnig 43,7% í Gnúpi. Fyrir viðskiptin átti Gnúpur […]

Samþykktir um byggingu knattspyrnuhúss standa

Eins og kunnugt er hefur Vestmannaeyjabær þegar tekið ákvörðun um að byggja knattspyrnuhús vestan við Týsheimilið. Áætlaður byggingakostnaður er um 210 milljónir fyrir utan jarðvegsframkvæmdir. Bæjarstjórn samþykkti einróma að fela umhverfis- og framkvæmdasviði að leita hagkvæmustu leiða til að byggja slíkt knattspyrnuhús í Vestmannaeyjum með það fyrir augum að það verði tekið í gagnið árið […]

Samþykktir um byggingu knattspyrnuhúss standa

Eins og kunnugt er hefur Vestmannaeyjabær þegar tekið ákvörðun um að byggja knattspyrnuhús vestan við Týsheimilið.  Áætlaður byggingakostnaður er um 210 milljónir fyrir utan jarðvegsframkvæmdir.  Bæjarstjórn samþykkti einróma að fela umhverfis- og framkvæmdasviði að leita hagkvæmustu leiða til að byggja slíkt knattspyrnuhús í Vestmannaeyjum með það fyrir augum að það verði tekið í gagnið árið […]

Grindavík – ÍBV kl.14 á laugardaginn

Bikarleikur okkar manna í 10.flokk við Grindavík sem var frestaður um síðustu helgi hefur loks verið settur á laugardaginn kl.14:00 í Grindavík. Fara peyjarnir með fyrri ferð laugardagsins og verða komnir heim með seinni ferð sama dags frá Þorlákshöfn. Hafa peyjarnir spilað 3 sinnum við Grindavík og unnið í 2 skipti frekar örugglega. Tapið kom […]

Hef mikla trú á liðinu í ár

Í dag birtum við leikmannakynningu úr körfuboltanum en sá sem gefur lesendum eyjar.net upplýsingar um sjálfan sig er Brynjar Ólafsson eða Binni eins og hann er alltaf kallaður. Fullt nafn: Brynjar Ólafsson Fæðingarár og staður:  1985 – Vestmannaeyjar Fjölskylduhagir & foreldrar:Á kærustu sem heitir Ragnheiður Lind Geirsdóttir. Foreldrar eru Ólafur Óskar Stefánsson og Edda Úlfljótsdóttir […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.